Bankaafstemming almennt

Með bankaafstemmingunni er hægt að stemma bankareikninga af jafnóðum og hafa þá rétta. Engin sjálfvirk pörun á sér stað nema að því undanskildu að færslur vegna innborgana á kröfum parast sjálfvirkt við reikninga.

Sækja færslur úr bankanum

Það er hægt að sækja færslur á tvenns konar hátt í kerfið annars vegar sjálfvirkt og hins vegar handvirkt: 

Sjálfvirkt með bankatengingu: Þegar bankinn er tengdur (sjá: Bankatenging og kröfustofnun) þarf að smella einu sinni á Sækja færslur undir punktunum þremur við bankareikninginn. Eftir það lesast færslur inn sjálfkrafa. Færslur eru sóttar frá upphafsdagsetningu bókhalds, sem er stillt undir Stillingar > Fyrirtæki > Bókhald.

Úr Excel: Smelltu á punktana þrjá við bankareikninginn og veldu Hlaða upp skjali, eða dragðu skjalið beint á boxið. Hægt er að nálgast Excel-skjalið í bankanum með bankafærslunum.

Banki vs Payday

Þegar bankaafstemmingin er opnuð og búið að lesa inn færslur sjást tveir dálkar. Á vinstri hlið eru færslur úr bankanum og á þeirri hægri færslur úr Payday. Para þarf saman færslur úr banka við færslur úr Payday. Ef ekki er til færsla til að para við er hægt að færa nýja færslu í hægri dálknum. Hér að neðan er búið að velja saman greiðslu á áður skráðum útgjöldum og seðilgjaldi. Til að para saman færslurnar er græna hakið í miðju valið.



Pörun

Þegar verið er að para saman færslur úr banka og áður bókaðar færslur í kerfinu er hægt að velja fjóra flokka færslna:

FlokkurHvað birtistHvað gerist við pörun
ReikningarSölureikningar sem hafa verið stofnaðirGreiðsla bókast ef reikningurinn er ógreiddur og reikningurinn verður Greiddur ef eftirstöðvar eru 0 kr.
ÚtgjöldÚtgjöld skráð á útgjaldasíðuGreiðsla bókast og útgjöldin verða Greidd
LaunFærslur úr launakeyrslumGreiðsla launatengdra gjalda bókast; kerfið stingur upp á pörun
AnnaðAllar færslur sem færðar hafa verið á bankareikninginnJafnast á móti, engin ný bókun

Ef reikningur eða útgjöld eru ekki til geturðu stofnað þau með + tákninu við leitarboxið.

Aðeins innborganir á kröfum parast sjálfkrafa við reikninga.

Nánari útskýringar:

  • Reikningar:  Hér birtast allir sölureikningar sem gefnir hafa verið út í kerfinu og ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar ógreiddur reikningur er valinn í listanum þá er bókuð greiðsla á reikningnum og hann fær stöðuna Greiddur ef eftirstöðvar eru 0 kr. Ef greiddur reikningur er valinn þá er þegar búið að bóka greiðsluna og sú greiðsla jöfnuð á móti bankafærslunni en engin bókun á sér stað. Ef ekki er búið að stofna reikninginn er hægt að gera það hér með því að smella á + táknið hægra megin við leitarboxið og mun þá stofnast reikningur ásamt greiðslu sem birtist undir Reikningar.
  • Útgjöld: Hér birtast öll þau útgjöld sem skráð hafa verið  í gegnum útgjaldasíðuna og ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar ógreidd útgjöld eru valin í listanum þá er bókuð greiðsla á útgjöldunum og þau fá stöðuna Greidd. Ef greidd útgjöld eru valin þá er þegar búið að bóka greiðsluna og sú greiðsla jöfnuð á móti bankafærslunni en engin bókun á sér stað. Ef ekki er búið að stofna útgjöldin er hægt að gera það hér með því að smella á + táknið hægra megin við leitarboxið og munu þá stofnast útgjöld ásamt greiðslu sem birtast undir Útgjöld.


  • Laun: Hér birtast allar færslur sem verða til við launakeyrslur í kerfinu sem ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar færsla í listanum er valin þá er bókuð greiðsla á þessum launatengdu gjöldum. Kerfið stingur upp á pörun sem notandi þarf að staðfesta. Ef það vantar færslur er hægt að leita eftir "Laun" í launaflipanum og þá ættu færslurnar að koma upp.
  • Annað: Hér birtast allar færslur sem færðar hafa verið á bankareikninginn (þ.e. hreyfingalisti) sem er verið að stemma af sem ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar færsla í listanum er valin þá er hún jöfnuð á móti bankafærslunni og engin bókun á sér stað. Ef færslan hefur ekki verið bókuð ennþá þá er hægt að smella á græna + táknið við hliðina á leitarboxinu til að skrá nýja færslu.

Ójafnaðar færslur

Hægt er að sjá ójafnaðar færslur í Payday á hvern bankareikning fyrir sig með því að smella á punktana þrjá við bankareikninginn og "Ójafnaðar færslur". 

Helstu ástæður fyrir því að færslur eru ójafnaðar eru: 

  1. Ekki er búið að para færsluna við færslu í afstemmingu
  2. Búið er að færa sömu færslu oftar en einu sinni
  3. Færslan er ekki færð á réttan bankareikning

Óparaðar færslur

Hér getur þú nálgast lista yfir þær færslur sem eftir á að para.


Sértilvik


Kennslumyndband

Hér má finna stutt kennslumyndband um hvernig afstemmingin virkar: Kennslumyndband