Bóka greiðslur milli reikninga
Kerfið sér sjálfkrafa millifærslur milli eigin reikninga og parar báðar færslurnar rétt svo notandinn þarf ekkert að gera.
Bóka innborgun á kreditkort
Smellt er á annað til hægri við hlið bankafærslunar og síðan smellt á plúsinn (+) til þess að búa til nýja færslu í Payday.
Valið er fjárhagur í tegund og síðan í dálknum lykill er valið Kreditkort (4200)
Greiðsla á VSK uppgjöri
Þegar VSK uppgjör er greitt kemur kerfið með tillögu að pörun í afstemmingunni. Aðeins þarf að staðfesta tillöguna með því að smella á græna tékk merkið í miðjunni.
Greiðslur á launum og launatengdum gjöldum
Þegar laun og launatengd gjöld eru greidd kemur kerfið með tillögu að pörun. Aðeins þarf að staðfesta tillöguna með því að smella á græna tékk merkið í miðjunni.