Það sem þarf að gera þegar skipt er um bókhaldskerfi er að færa inn upphafsstöður á öllum fjárhagslyklum,viðskiptavinum og lánardrottnum í dagbók.

Hvaða upplýsingar þarf?

  • Upphafsstöður stundum kallað saldó listi eða aðalbók
  • Veflykil staðgreiðslu
  • Veflykil VSK
  • Notandanöfn og lykilorð fyrir lífeyrissjóði og stéttarfélög
  • Notendanafn og lykilorð að banka til þess að virkja bankatengingu


Sækja upphafsstöður úr Reglu:

Smellt er á bókhald í Reglu->aðalbók->dags valin og "keyra fyrirspurn"


Upphafsstöður eru svo færðar inn í dagbók samkvæmt þessari grein: Upphafsstöður færðar í dagbók


Yfirfærsla viðskiptavina úr Reglu:

Smellt er á sölukerfi->viðskiptamannalisti og smellt á excel táknið.

Yfirfærsla vörulista úr Reglu:

Smellt er á sölukerfi->vörulisti og excel táknið


Vörulisti er svo lesinn inn samkvæmt þessari grein: Innlestur á vörum úr excel


Yfirfærsla lánardrottna úr Reglu:

Smellt er á lánardrottnar->listi lánardrottna og smellt á excel táknið.


Lánardrottnar eru svo lestnir inn samkvæmt þessari grein: Innlestur á lánardrottnum úr Excel


Tengdar greinar: Bankatenging og kröfustofnun