Hægt er að lesa inn vörulista úr Excel undir Sala > Vörur > Aðgerðir > Hlaða upp skrá til að stofna nýjar vörur í Payday. Til að lesa inn Excel skjal þarf skjalið að vera á ákveðnu formi.

Formið er hægt að nálgast hér 

Mikilvægt er að þetta form sé notað og ekki séu gerðar neinar breytingar á því.

Dálkar:

Nafn: (Krafist) Heiti á vöru.

Lýsing: Nánari lýsing á vöru.

Vörunúmer: einkvæmt númer á vöru innan þíns fyrirtækis. Einnig þekkt sem SKU númer.

Tög: Tög sem er hægt er að nota til þess að aðgreina vöruna enn frekar og einfaldar leit. Ef það eru fleiri en eitt tag, þá er hægt að aðskilja þau með kommu.

Söluverð án VSK.: (Krafist ef söluverð með VSK er ekki uppgefið). Söluverð á vöru án VSK. Ef bæði söluverð með og án VSK eru gefin upp þá er eingöngu tekið mark á þessu gildi.

Söluverð með VSK: (Krafist ef söluverð án VSK er ekki uppgefið). Söluverð á vöru með VSK.

Lykill fyrir sölu: Heiti á bókhaldslykli sem er notaður þegar sala er bókuð. Ekki er stuðst við þennan dálk þegar halað er upp skrá.

Kóði: (Krafist) Kóði á bókhaldslykli sem er notaður þegar sala er bókuð. Stuðst er við þennan dálk þegar halað er upp skrá. Passaðu vel upp á réttur lykill er notaður og hvort þú sért skráður í VSK skyldum rekstri.

Magn á lager: Upphafsmagn af vörunni ef halda á utan um lager.

Í geymslu: Viltu að varan sé skráð í geymslu. Notaðu gildin "Já" eða "Nei". Ef ekkert er valið þá er sjálfgefið gildið "Nei".

Mikilvægt er að lesa vel yfir skrána áður en henni er halað upp.