Ertu að leita að því hvernig þú bókar eigin skatta fyrirtækisins? Sjá: Tekjuskattur af hagnaði einnig hér Fyrirframgreidd opinber gjöld
Launagreiðendum ber að standa skil á opinberum gjöldum utan staðgreiðslu (þing- og sveitarsjóðsgjöldum) starfsmanna sinna. Þessi grein lýsir hvernig það er gert í Payday.
1. Sækja um rafræn skil
Byrja þarf á því að sækja um aðgang að rafrænum skilum hjá Fjársýslu ríkisins. Launagreiðendur senda upplýsingar um fyrirtækið til Fjársýslu ríkisins sem skráir upplýsingar inn í Tekjubókhaldskerfi ríkisins. Skrá er þá send út 20. eða 24. hvers mánaðar og er á TXT-formi.
Nánari upplýsingar má finna inni á vef Skattsins.
2. Hlaða skránni upp í launakeyrslu
Smelltu á launakeyrsluna sem er í drögum. Síðan ferð þú í Aðgerðir > Hlaða upp skrá fyrir eftirágreidda skatta.

3. Senda skilagrein
- Keyrðu launakeyrsluna.
- Sæktu skrána: Aðgerðir > Sækja skrá fyrir eftirágreidda skatta.
- Sendu skrána á netfangið tbrkrafa@runuvinnsla.is .
- Millifærðu upphæð skilagreinarinnar inn á reikning Skattsins.

Tengdar greinar
- Hvernig greiði ég mér laun?
- Bóka greiðslur á launatengdum gjöldum
- Fyrirframgreidd opinber gjöld
- Algengar aðgerðir í afstemmingu