Tveggja þátta auðkenning (2FA) eykur öryggi aðgangsins þíns. Við innskráningu slærðu inn sex stafa kóða úr auðkenningarappi í símanum, auk lykilorðsins.

Skiptir þú um síma eða týndir honum? Sjá kaflann „Nýr eða týndur sími“ hér að neðan.

1. Sæktu auðkenningarapp

Veldu eitt af þessum öppum og sæktu það í símann:

AppAndroidiPhone
Google AuthenticatorGoogle PlayApp Store
Microsoft AuthenticatorGoogle PlayApp Store
LastPass AuthenticatorGoogle PlayApp Store

2. Virkjaðu tveggja þátta auðkenningu í Payday

  1. Farðu í Stillingar > Notendur og smelltu á notandann þinn. Vinstra megin á valmyndinni í Payday.
  2. Smelltu á Virkja við tveggja þátta auðkenningu.
  3. Opnaðu auðkenningarappið og skannaðu QR-kóðann sem birtist í Payday.
  4. Appið sýnir sex stafa kóða. Sláðu hann inn í Payday. 

ATH! Myndin er sýningardæmi, þú átt ekki að skanna kóðann á myndinni

3. Innskráning eftir það

Í hvert skipti sem þú skráir þig inn opnarðu auðkenningarappið og slærð inn sex stafa kóðann sem birtist þar.

Nýr eða týndur sími

Af hverju er þetta skylda?

Þetta kemur í veg fyrir að óprúttinn aðili geti komist inn á aðganginn þinn ef hann hefur notandanafnið og lykilorðið hjá þér.

Tengdar greinar