Senda reikning / stofna reikning
Búa til reikning skref fyrir skref:#
Smelltu á Sala > Reikningar > Nýr reikningur.
Veldu viðskiptavin eða smelltu á Nýr viðskiptavinur.
Skrifaðu lýsingu eða veldu vöru.
Sláðu inn magn, upphæð með eða án VSK og veldu VSK-prósentu.
Bættu við línum með Bæta við línu.
Veldu bókunardag, gjalddaga og eindaga.
Settu inn tilvísun ef þú vilt, t.d. verknúmer.
Þegar það er klárt þá getur þú smellt á Stofna reikning

Stillingar reiknings#
Tölvupóstur: Veldu hvort reikningurinn er sendur í tölvupósti og á hvaða netfang. Til að breyta texta og efnislínu tölvupóstsins, sjá hér Breyta tölvupósti fyrir reikninga
Gjaldmiðill: Sjá Reikningar í erlendum gjaldmiðlum
Rafrænn reikningur (XML): Reikningurinn fer beint í bókhald viðskiptavinar. Sjá hér: Rafrænir reikningar (XML)
Greiddur: Hakaðu við ef reikningurinn er þegar greiddur.
Krafa í netbanka: Stofnar kröfu í netbanka viðskiptavinar. Til þess að þetta sé hægt þarf að vera búið að tengja bankann við Payday undir Stillingum > Fyrirtæki > Banki. Sjá meira hér: Bankatenging og kröfustofnun.

Aðgerðir:#
Þegar reikningur hefur verið stofnaður er hægt að smella á Aðgerðir.
Þar koma aðgerðarhnappar þar sem t.d. hægt er að prenta reikning, endursenda í tölvupósti og sækja sem PDF.
Einnig er hægt að veita greiðslufrest, stofna kröfu og senda rafrænan reikning (ef það var ekki gert áður)
Ef reikningur var rangur þá þarf að kreditfæra hann, sjá hér: Kreditfæra reikning

Tengdar greinar: