Fara beint í efni

Bankatenging og kröfustofnun

Þú getur nýtt þína bankatengingu og kröfustofnun undir þjónustuleiðunum Allur pakkinn, Þéttur, Laun og Nettur. Við hvetjum alla til að nýta sér þessa þjónustu því með henni birtast kröfur í netbanka viðskiptavinar þíns, færslur á reikningum eru sóttar fyrir bókhaldið, hægt að stofna greiðslubunka og rafræn skjöl í netbanka.

Notendur í Allur pakkinn, Þéttur og Laun þjónustuleiðunum geta valið um að greiðslubunkar (greiðslubeiðni) stofnist í netbanka þegar launagreiðslur eru gerðar og þannig minnkar handavinnan og komið er í veg fyrir mistök. Athugið að greiðslubunkann þarf að staðfesta handvirkt í netbankanum til að greiðsla sé framkvæmd.



Stofna kröfu í netbanka:

Til að senda kröfur í netbanka viðskiptavina þinna þarftu að byrja á því að sækja um kröfuþjónustu í þínum viðskiptabanka. Að því loknu færð þú upplýsingar frá bankanum sem þú slærð inn undir Stillingar > Fyrirtæki > Banki og þá er ferlinu lokið. Það kostar ekkert að setja upp kröfuþjónustu í þínum viðskiptabanka en bankinn tekur gjald þegar kröfur eru stofnaðar, greiddar og þeim breytt. Flest fyrirtæki leggja seðilgjald á kröfur til að standa fyrir þessum kostnaði en það er þitt val hvort þú gerir það. 

Bankatenging við Arion banka:

Þegar tengt er Payday við Arion banka eru nokkrir hlutir sem þarf að hafa í huga.

  • Þegar reynt er að tengjast Arion í fyrsta skipti þá kemur villa frá bankanum og þá þarf að hringja í þjónustuver bankans í síma 444 7000 og biðja um að búnaðarskilríki séu virkjuð. Því næst smellir þú á vista og þá er tengingin komin milli Payday og Arion

Innborgunarreikningur

Hægt er að velja bankareikninginn sem greiðslur kröfum greiðast inn á.

Þriggja stafa auðkenni

Í flestum tilfellum eru þriggja stafa auðkennisnúmer eftirfarandi hjá þessum bönkum (í undantekningar tilfellum eru þau þó önnur)

Arion : 001

Íslandsbanki: IAA

Landsbankinn: 037