Fara beint í efni
Á þessari síðu

Rafrænir reikningar (XML)

Með rafrænum reikningum (XML) fer reikningurinn beint inn í bókhald viðskiptavinarins í stað þess að vera sendur í tölvupósti. Það sparar pappír og tíma beggja aðila.

Viltu taka á móti rafrænum reikningum? Sjá greinina „Taka á móti rafrænum reikningum“

Senda rafrænan reikning#

  1. Stofnaðu reikning undir Sala > Reikningar > Nýr reikningur > Veldu síðan viðskiptavininn og fylltu út reikninginn.

  2. Undir stillingum reikningsins skaltu haka við Senda rafrænan reikning (XML).

  3. Kerfið athugar hvort viðskiptavinurinn tekur á móti rafrænum reikningum.

  4. Ef viðskiptavinurinn er stofnun með fleiri en eitt auðkenni (t.d. Reykjavíkurborg) skaltu velja rétt auðkenni. Ef ekki þá er ekkert fært í þennan reit og rafræni reikningurinn sendist á kennitölu viðskiptavinar.

  5. Stofnaðu reikninginn.

Hverjir taka á móti rafrænum reikningum?#

Það er aðeins hægt að senda rafrænan reikning á félög með íslenska kennitölu. Einnig verða þau að vera búin að haka við að taka á móti rafrænum reikningum í bókhaldskerfinu sem þau nota svo að hægt sé að senda þeim rafrænan reikning.

Sjá hvort reikningurinn skilaði sér#

Þú getur skoðað hvort reikningurinn hafi verið sendur rafrænt undir "Saga" í reikningnum 

Senda rafrænan reikning eftir á #

Ef reikningur var ekki sendur rafrænt í upphafi geturðu sent hann undir Sala > Reikningar > Smelltu á reikninginn > Aðgerðir > Senda rafrænan reikning.