Hvernig greiði ég mér laun?
Í þessari grein munum við fara yfir hvernig þú getur stofnað launakeyrslu, greitt launin og sent skilagreinarnar til skattsins, lífeyrissjóða og stéttafélaga.
Stofna launakeyrslu#
Smelltu á Laun > Ný launakeyrsla.
Launakeyrsla með öllum virkum starfsmönnum opnast.

Smelltu á starfsmanninn sem á að bæta launum á.

Smelltu síðan á laun og hlunnindi.

Smelltu á Bæta við launalið.

Veldu launaliðinn sem á við og settu inn magn (hvort sem það séu tímar eða 1 fyrir heildarlaun) og upphæð.

Passaðu að tímabilið sé rétt valið.

Veldu hvenær þú vilt senda skilagreinar undir stillingar á launakeyrslunni.

Ef allar upplýsingar eru réttar getur þú bókað launakeyrsluna.

Greiðslubunkar#
Payday millifærir ekki launin sjálfkrafa en hægt er að láta stofna greiðslubunka fyrir millifærslu launa sem þarf að staðfesta í netbankanum og þá eru launin millifærð. Bankatenging þarf að vera virk svo að hægt sé að stofna greiðslubunka í heimabankanum sjá hér: Bankatenging
Farðu í Stillingar > Fyrirtæki > Banki.
Hakaðu við í "Stofna greiðslubunka fyrir millifærslu launa" og veldu úttektarreikning.

Ef stillingin er ekki valin þá þarf að millifæra launin handvirkt
Hvar finn ég greiðslubunka í netbankanum?
Banki | Leið í netbanka |
|---|---|
Íslandsbanki | Greiðslur > Greiðsluskrár > Yfirlit |
Landsbankinn | Forsíða > Vinnuborð |
Arion banki | Greiðslubunkar > Bunkar í vinnslu |
Greiða laun handvirkt#
Ef stillingin Stofna greiðslubunka fyrir millifærslu launa er ekki valin þarft þú að millifæra launin handvirkt.
Þú getur nálgast Excel-skjal með launaskrá undir Aðgerðir > Sækja launaskrá fyrir launakeyrslu. Á því skjali koma upphæðirnar og bankareikningarnir sem á að millifæra á starfsmenn út frá launakeyrslunni.
Millifærðu launin á bankareikning starfsmannsins í netbankanum.
Greiðslur á launatengdum gjöldum eru skýrðar í greininni Bóka greiðslur á launatengdum gjöldum.
Skilagreinar#
Skilagreinar er hægt að senda með einföldum hætti og er það stillt undir Stillingar flipanum í launakeyrslunni. Þar getur þú valið hvort þær séu:
sendar á eindaga,
sendar strax,
sendar á ákveðinni dagsetningu, eða
ekki sendar.

Nánar um lífeyrisgreiðslur í greininni Hvað um greiðslur í lífeyris- og viðbótarlífeyrissjóði?
Launaseðlar#
Þú getur nálgast launaseðla í Payday hvenær sem er og eru þeir í samræmi við hefðbundna launaseðla þar sem fram kemur m.a. laun, mótframlag launagreiðanda, staðgreiðsla, greiðsla í lífeyrissjóði og upplýsingar um nýttan persónuafslátt. Það er alfarið á þinni ábyrgð að upplýsingar um launareikning, stéttarfélag og lífeyrissjóð séu réttar.
Hægt er að bæta við sjálfgefna athugasemd á alla launaseðla undir Stillingar > Fyrirtæki > Laun > Launaseðlar.
Síðan er hægt að skrá sjálfgefna athugasemd á ákveðinn starfsmann undir Stillingar > Starfsmenn > Veldu starfsmann > Laun > Launaseðlar. Ef sjálfgefin athugasemd er skráð á ákveðinn aðila þá fær sá aðili ekki þá athugasemd sem búið var að skrá á alla einstaklinga.
Saga
Hægt er að sjá undir Saga í launakeyrslu hver stofnaði launakeyrsluna og hvort greiðslubunki hafi verið stofnaður
Rangar launakeyrslur#
Best er að skoða þessar leiðbeiningar um hvernig þú getur eytt launakeyrslu sjá hér: Hvernig eyði ég launakeyrslu?
Kennslumyndband#
Hér að neðan er kennslumyndband um hvernig skal gera launakeyrslu.