Hvað um greiðslur í lífeyris- og viðbótarlífeyrissjóði?
Payday sér um að búa til og senda sjálfvirkt inn skilagreinar fyrir lífeyrissjóðsgreiðslur. Hægt er að velja hvenær skilagreinar eru sendar undir Stillingar við gerð launakeyrslu.

Hafi notandi valið að hann vilji greiða í viðbótarlífeyrissjóð undir stillingarsíðu býr kerfið einnig til skilagrein fyrir það.
Hægt er að skoða þessar skilagreinar undir Yfirlit > Lífeyrissjóður.
Starfsmenn sem greiða ekki í lífeyrissjóð#
- 70 ára og eldri: Sjá hér: Laun fyrir 70 ára+
- Undir 16 ára: Sjá hér: Laun undir 16 ára
Hvernig er greitt í lífeyrissjóðinn?#
Þegar skilagreinar hafa skilað sér til lífeyrissjóðsins þá ættir þú að fá kröfu í heimabanka frá lífeyrissjóðnum.
Ekki tókst að senda skilagrein#
Ef notandi hefur fengið tölvupóst um að ekki hafi tekist að senda inn skilagreinar til lífeyrissjóðs, þá er vandamálið líklegast það að notendanafn og/eða veflykill að launagreiðandavef viðkomandi lífeyrissjóðs er vitlaust skráð í Payday. Þessu er hægt að breyta undir Stillingar > Starfsmenn > Smelltu á starfsmann í þeim lífeyrissjóði > Lífeyrissjóðir og stéttarfélög. Þar getur þú breytt notandanafninu og veflyklinum í það sama og þú notar til að skrá þig inn á launagreiðendavefinn hjá viðkomandi lífeyrissjóði.