Veflyklar: Hvað eru þeir og hvernig eru þeir notaðir?
Hver einstaklingur og félag geta haft allt að fjóra mismunandi veflykla til að sinna ýmsum skattalegum verkefnum. Þegar kemur að rafrænum skilaferlum skipta veflyklar miklu máli.
Tegundir veflykla:
Almennir lyklar:
- Aðalveflykill: Aðgöngulykill fyrir almenna þjónustu Skattsins.
- Skilalykill fagaðila: Notaður af fagaðilum fyrir ýmis skil.
Sérlyklar fyrir atvinnurekstur:
- Veflykill VSK: Notaður fyrir rafræn skil af virðisaukaskatti. Hann ætti að byrja á V
- Veflykill Staðgreiðslu: Notaður fyrir rafræn skil á staðgreiðslu skatta. Hann ætti að byrja á S
Þessir lyklar eru einnig gagnlegir fyrir rafræn skil á öðrum sköttum og gjöldum, eins og fjársýsluskatti, tryggingagjaldi, fjármagnstekjuskatti, og gistináttaskatti.
Hvar á að finna veflykla:
Þú getur nálgast lyklanna á þjónustuvef skattsins ef þú finnur þá ekki sjá hér: Sækja um veflykla
Notkun veflykla í Payday:
Payday nýtir veflykil VSK og veflykil staðgreiðslu til að auðvelda rafræn skil og tryggja að allar greiðslur séu unnar réttilega.
- Þú getur fært inn veflykil VSKundir Stillingar > Fyrirtæki > Vsk. Þú þarft að haka í að rekstur sé vsk skyldur þarna undir til þess að geta fært hann inn. Mikilvægt er að passa að veflykill virðisaukaskatts byrjar á V.

- Veflykil staðgreiðslu er síðan hægt að færa inn undir stillingar > fyrirtæki > laun. Þú þarft að haka við að þú sért á launagreiðendaskrá til þess að færa hann inn. Mikilvægt er að passa að hann byrji á S.
