Payday býður ekki upp á native app en hægt er að setja flýtileið í símann fyrir Payday vefviðmótið sem virkar svipað eins og app. Hér að neðan eru upplýsingar um hvernig þetta er gert í iPhone og Android.
iPhone
- Til þess að fá Payday sem flýtileið í iPhone þarf að fara inn á payday.is í Safari
- Smella á hnappinn í miðjunni (sjá mynd)
- Síðan er smellt á "Add to Home Screen" og þá er Payday komið sem flýtileið í símann
Android
- Til þess að fá Payday sem flýtileið í Android þarf að fara inn á payday.is í Chrome eða öðrum vafra
- Smellt er á "Innskráning"
- Smellt er á "Add Payday to home screen" (sjá mynd)
- Síðan er smellt á "Install" og þá er Payday komið sem flýtileið í símann