Þegar verið er að bóka kostnað sem er útlagður af eiganda er gott að halda utan um það á sérstökum bókhaldslykli.
Þessi bókhaldslykill er nú þegar til í kerfinu með nafnið "Skuld við eiganda" (4460).
Þegar útgjöld eru bókuð er þá þessi lykill valinn sem greiðslumáti.
Ef að eigandi lánar fyrirtæki er það bókað í gegnum dagbók.
Bókað er þá á Skuld við eiganda (4460) í kredit og á móti þann bankareikning sem lagt var inn á.
Fyrirtæki greiðir eiganda tilbaka:
Þegar fyrirtæki greiðir eiganda til baka er það hægt með tveimur leiðum.Í dagbók eða í afstemmingu.
Dagbók:
Bókað er debet á skuld við eiganda og bankareikningur valinn á móti.
Afstemming:
Valið er annað í afstemmingu og smellt á plúsinn til að búa til nýja færslu. Skuld við eiganda er valinn sem lykill. Smellt er á velja og færslan pöruð.