Fara á Payday.is

Hægt er að lesa inn færslur í dagbók úr Excel skjali undir Bókhald > Dagbók > Aðgerðir > Hlaða upp skrá. Til verða nýjar færslur í dagbókinni sem hægt er að breyta og bóka. Til að lesa inn Excel skjal þarf skjalið að vera á ákveðnu formi. ATH! Ekki er hægt að lesa inn fleiri en 50 færslur/línur í einu.

Formið er hægt að nálgast hér 

Mikilvægt er að þetta form sé notað og ekki séu gerðar neinar breytingar á því.

Færsla nr: Hlaupandi númeraröð innan skjalsins (eingöngu tölustafir leyfilegir). Ef gera á margar línur innan sömu færslu þá er þetta númer það sama. Dagbókin úthlutar svo fylgiskjalanúmerum út frá næsta lausa númeri í kerfinu

Dags. Dagsetning sem færslan bókast á 

Lýsing: Textalýsing á færslunni

Tegund: Hér er valin tegund færslu þ.e. 1 = Fjárhagur, bókhaldslykill, 2 = Viðskiptavinir eða 3 = Lánardrottinn

Lykill:  Hér er númer bókhaldslykils valið sé um að ræða fjárhagsfærslu (1) eða kennitala ef um er að ræða viðskiptavin eða lánardrottinn (2,3)

Fjárhæð m/vsk: Upphæð með vsk

VSK:  Hér er valin sú vsk prósenta sem á að reiknast af færslunni. Tómt eða 0 = 0% vsk, 11 = 11% vsk eða 24 = 24% vsk.  Þessi skilgreining á aðeins við um færsluna ekki mótbókunina

Tilvísun:  Hér er hægt að setja inn tilvísun svo sem númer reiknings

Mótlykill: Bókhaldslykillinn sem færslar bókast á móti á ef við á

Mikilvægt er að lesa dagbókina vel yfir áður en hún er bókuð svo allt bókist rétt.