Algengar bókhaldsaðgerðir í dagbók
Þegar gjöld er færð þarf að velja gjaldalykil. Mótlykillinn fer svo eftir því hvort gjöldin hafi verið staðgreidd eða færð til skuldar á lánardrottinn. Meðfylgjandi eru dæmi um hvort tveggja:
Tekjur bókaðar #
Sama á við hér, tekjulykill er valinn. Mótlykillinn fer svo eftir því hvort tekjurnar hafi verið staðgreiddar eða færðar á viðskiptavin. Meðfylgjandi eru dæmi um hvort tveggja:
Innborgun frá viðskiptavini #
Þegar innborgun frá viðskiptavini er bókuð þarf að merkja hvaða reikning er verið að greiða.
Greiðsla á reikningi frá birgja#
Með sama hætti þarf að velja hvaða reikning er verið að greiða þegar greiðsla til birgja er færð.
Útlagður kostnaður af eiganda/lán frá eiganda#
Þegar verið er að bóka kostnað sem var lagt út fyrir af eiganda er gott að halda utan um það á sérstökum bókhaldslykli. Stofna þarf lykilinn og haka við "Nota fyrir greiðslur". Þá er búið að búa til greiðslumáta.


Bóka VSK og toll af innflutningi#
Hér að neðan er dæmi um bókun vegna gjalda sem falla til við innflutning.
Bóka fjármagnstekjuskatt og innvexti
Fjármagnstekjuskattur:
Þegar bókað er fjármagnstekjuskatt er fært í debet á fjármagnstekjuskattur af vöxtum (lykill 3920) og á móti er valin bankareikningur
Innvextir:
Þegar innvextir eru bókaðir er bókað í debet á bankareikning og á móti er valið Vaxtatekjur og aðrar fjármunatekjur (lykill 1390)





