Fara beint í efni
Á þessari síðu

Dagbók almennt

Dagbók er notuð til að færa færslur sem kerfið færir ekki sjálfkrafa og eru ekki færðar í gegnum útgjaldasíðuna. Hægt er til dæmis að færa útgjöld og greiðslur á þeim í gegnum útgjaldasíðu sem mælt er með eða í gegnum dagbók.  

Debet og kredit í stuttu máli#

Hver færsla hefur tvær hliðar sem stemma: debet og kredit. „Bóka á móti“ þýðir að velja lykilinn á hinni hliðinni, þá bókast sjálfkrafa á móti því sem hefur verið valið í línunni á dagbókarfærslunni.

Tegund lykilsHækkar meðLækkar með
Eignir (t.d. banki)DebetKredit
SkuldirKreditDebet
GjöldDebetKredit
TekjurKreditDebet

Dæmi: Þú greiðir reikning frá birgi, 10.000 kr., af bankareikningi.

  • Debet: Lánardrottinn (skuldin lækkar) 10.000 kr. (Einnig í dæminu hér að neðan valdi ég að bóka á útgjöldin "Test" til að skrá útgjöldin sem greidd)
  • Kredit: Bankareikningur (eign lækkar) 10.000 kr.

Síðan getur þú séð hvernig greiðslan kemur út hér:

Ný dagbókarfærsla#

  1. Farðu í Bókhald > Dagbók. (Ef dálkurinn kemur ekki upp þarf að passa að þú sért í réttri áskrift. Þú getur skoðað það undir Stillingar > Áskrift)
  2. Smelltu á + Bæta við færslu neðst á síðunni.
  3. Veldu dagsetningu, lýsingu, lykil (þú getur einnig breytt úr fjárhag yfir í viðskiptavin eða lánardrottin), upphæð og mótlykil.
  4. Bættu við línum með + tákninu ef færslan hefur fleiri en tvær línur.
  5. Hengdu fylgiskjal við með bréfaklemmunni, t.d. mynd af reikningi.
  6. Ef þú heldur að færsla sé tilbúin, þá getur þú skoðað hvernig hún kemur út með því að smella á 3 línurnar.
  7. Þegar allt er klárt getur þú smellt á "Bóka færslu"

Kerfið gefur hverri færslu einkvæmt færslunúmer.

Algengar spurningar#

  • Get ég byrjað á fylgiskjali nr. 1 á nýju ári? Já, þú getur hakað í þá virkni undir Stillingar > Fyrirtæki > Bókhald > Hakaðu í "Byrja nýja númeraröð á nýju ári" > Vistaðu svo neðst niðri.
  • Þurfa færslur að vera í dagsetningaröð? Nei, færslurnar geta verið með mismunandi dagsetningar í dagbókinni
  • Hvernig bakfæri ég færslu? Þú getur bakfært færslu með því að opna færslubókina undir bókhald > færslubók > leitaðu að færslunni og smelltu á hana > bakfæra færslu