Afstemming
Bankaafstemming almennt#
Með bankaafstemmingunni er hægt að stemma bankareikninga af jafnóðum og hafa þá rétta. Engin sjálfvirk pörun á sér stað nema að því undanskildu að færslur vegna innborgana á kröfum parast sjálfvirkt við reikninga.
Sækja færslur úr bankanum#
Það er hægt að sækja færslur á tvenns konar hátt í kerfið annars vegar sjálfvirkt og hins vegar handvirkt:
Sjálfvirkt með bankatengingu: Þegar bankinn er tengdur (sjá: Bankatenging og kröfustofnun) þarf að smella einu sinni á Sækja færslur undir punktunum þremur við bankareikninginn. Eftir það lesast færslur inn sjálfkrafa. Færslur eru sóttar frá upphafsdagsetningu bókhalds, sem er stillt undir Stillingar > Fyrirtæki > Bókhald.
Úr Excel: Smelltu á punktana þrjá við bankareikninginn og veldu Hlaða upp skjali, eða dragðu skjalið beint á boxið. Hægt er að nálgast Excel-skjalið í bankanum með bankafærslunum.
Banki vs Payday#
Þegar bankaafstemmingin er opnuð og búið að lesa inn færslur sjást tveir dálkar. Á vinstri hlið eru færslur úr bankanum og á þeirri hægri færslur úr Payday. Para þarf saman færslur úr banka við færslur úr Payday. Ef ekki er til færsla til að para við er hægt að færa nýja færslu í hægri dálknum. Hér að neðan er búið að velja saman greiðslu á áður skráðum útgjöldum og seðilgjaldi. Til að para saman færslurnar er græna hakið í miðju valið.

Pörun#
Þegar verið er að para saman færslur úr banka og áður bókaðar færslur í kerfinu er hægt að velja fjóra flokka færslna:
| Flokkur | Hvað birtist | Hvað gerist við pörun |
|---|---|---|
| Reikningar | Sölureikningar sem hafa verið stofnaðir | Greiðsla bókast ef reikningurinn er ógreiddur og reikningurinn verður Greiddur ef eftirstöðvar eru 0 kr. |
| Útgjöld | Útgjöld skráð á útgjaldasíðu | Greiðsla bókast og útgjöldin verða Greidd |
| Laun | Færslur úr launakeyrslum | Greiðsla launatengdra gjalda bókast; kerfið stingur upp á pörun |
| Annað | Allar færslur sem færðar hafa verið á bankareikninginn | Jafnast á móti, engin ný bókun |
Ef reikningur eða útgjöld eru ekki til geturðu stofnað þau með + tákninu við leitarboxið.
Aðeins innborganir á kröfum parast sjálfkrafa við reikninga.
Nánari útskýringar:#
- Reikningar: Hér birtast allir sölureikningar sem gefnir hafa verið út í kerfinu og ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar ógreiddur reikningur er valinn í listanum þá er bókuð greiðsla á reikningnum og hann fær stöðuna Greiddur ef eftirstöðvar eru 0 kr. Ef greiddur reikningur er valinn þá er þegar búið að bóka greiðsluna og sú greiðsla jöfnuð á móti bankafærslunni en engin bókun á sér stað. Ef ekki er búið að stofna reikninginn er hægt að gera það hér með því að smella á + táknið hægra megin við leitarboxið og mun þá stofnast reikningur ásamt greiðslu sem birtist undir Reikningar.
- Útgjöld: Hér birtast öll þau útgjöld sem skráð hafa verið í gegnum útgjaldasíðuna og ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar ógreidd útgjöld eru valin í listanum þá er bókuð greiðsla á útgjöldunum og þau fá stöðuna Greidd. Ef greidd útgjöld eru valin þá er þegar búið að bóka greiðsluna og sú greiðsla jöfnuð á móti bankafærslunni en engin bókun á sér stað. Ef ekki er búið að stofna útgjöldin er hægt að gera það hér með því að smella á + táknið hægra megin við leitarboxið og munu þá stofnast útgjöld ásamt greiðslu sem birtast undir Útgjöld.

- Laun: Hér birtast allar færslur sem verða til við launakeyrslur í kerfinu sem ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar færsla í listanum er valin þá er bókuð greiðsla á þessum launatengdu gjöldum. Kerfið stingur upp á pörun sem notandi þarf að staðfesta. Ef það vantar færslur er hægt að leita eftir "Laun" í launaflipanum og þá ættu færslurnar að koma upp.
- Annað: Hér birtast allar færslur sem færðar hafa verið á bankareikninginn (þ.e. hreyfingalisti) sem er verið að stemma af sem ekki er búið að para í bankaafstemmingu. Þegar færsla í listanum er valin þá er hún jöfnuð á móti bankafærslunni og engin bókun á sér stað. Ef færslan hefur ekki verið bókuð ennþá þá er hægt að smella á græna + táknið við hliðina á leitarboxinu til að skrá nýja færslu.
Ójafnaðar færslur#
Hægt er að sjá ójafnaðar færslur í Payday á hvern bankareikning fyrir sig með því að smella á punktana þrjá við bankareikninginn og "Ójafnaðar færslur".
Helstu ástæður fyrir því að færslur eru ójafnaðar eru:
- Ekki er búið að para færsluna við færslu í afstemmingu
- Búið er að færa sömu færslu oftar en einu sinni
- Færslan er ekki færð á réttan bankareikning

Óparaðar færslur#
Hér getur þú nálgast lista yfir þær færslur sem eftir á að para.

#
Sértilvik#
- Millifærsla á milli eigin reikninga
- Innborgun á kreditkort
- Innborgun frá kortafyrirtækjum
- Afstemming á kreditkorti
- Afstemming á dagbókarfærslum
- Algengar aðgerðir í afstemmingu
- Bankareikningur stemmir ekki, hvað er til ráða?
Kennslumyndband
Hér má finna stutt kennslumyndband um hvernig afstemmingin virkar: Kennslumyndband