Það er gert með því að velja "Sækja gögn út banka" á útgjaldasíðunni. Hægt er að lesa inn færslur af bankareikningum og af kreditkortum. Byrja þarf á að sækja færslurnar og vista þær sem Excel skjal og síðan er skránni hlaðið inn. Þegar kerfið er búið að vinna úr skránni er hægt að velja viðeigandi bókhaldslykil, VSK prósentu o.s.frv.
Einnig er hægt að sleppa því að bóka einhverjar færslur með því að taka hakið af fremst í línunni.
Sjá meira hér: Útgjöld