Afreikningar

Afreikningar eru frábrugðnir hefðbundnum reikningum að því leyti að þeir innihalda bæði tekjur og gjöld. Við bókun afreikninga er hægt að fara tvær leiðir:

1. Færsla í gegnum dagbók

Afreikningurinn er færður með dagbókarfærslu þar sem viðeigandi tekju- og gjaldalyklar eru valdir. Að lokum eru eftirstöðvar færðar á viðskiptavin eða lánardrottin, eftir því sem við á.

2. Færsla í gegnum útgjöld

Í mörgum tilvikum er hentugra að færa afreikninga í gegnum Útgjöld, sérstaklega þegar notast er við rafræna reikninga eða reikningar eru sendir beint inn í Payday.

Til að hægt sé að velja tekjulykil við skráningu útgjalda þarf fyrst að opna viðkomandi bókhaldslykil og haka við valkostinn „Veljanlegur sem flokkur útgjalda“. Að því loknu verður lykillinn aðgengilegur við skráningu afreiknings í útgjöldum.