Þegar tekjur eru innheimtar fyrirfram þarf að tryggja að þær séu færðar á það tímabil sem þær tilheyra. Til þess eru tekjurnar bakfærðar og færðar sem skuld þar til þær teljast áunnar.

Þetta er gert með dagbókarfærslu þar sem:

  • debet er fært á tekjulykil, t.d. 1290 – Aðrar tekjur, og
  • kredit er fært á skammtímaskuld, t.d. 4490 – Aðrar skammtímaskuldir.

Ef slíkar færslur eru tíðar getur verið hentugt að stofna sérstakan bókhaldslykil, t.d. „Fyrirfram innheimtar tekjur“, til að halda utan um þessar stöður.

Þegar kemur að því tímabili sem tekjurnar tilheyra er staðan tekjufærð með dagbókarfærslu með öfugum formerkjum. Við það lækkar skuldin og tekjurnar færast á rétt tímabil.