Um Godo samþættinguna

Uppsetning samþættingarinnar við Godo felst í því að nálgast upplýsingar úr Payday til þess að senda áfram á teymið hjá Godo sem aðstoða við að setja upp samþættinguna. Mikilvægt er að fylgja öllum skrefum sem koma fram hér að neðan.

Helstu eiginleikar samþættingarinnar:

  • Reikningar, kreditreikningar og viðskiptavinir úr godo verða til í payday út frá pöntunum sem eiga sér stað í Godo.


Forkröfur þess að tengja Godo við Payday

  • Viðskiptavinur þarf að vera skráður í Allur pakkinn.


Setja upp samþættingu við Godo

1. Opnar Payday og smellir á Stillingar > Fyrirtæki > Samþættingar > Bæta við

Þar inni velur þú Tegund tengingar "PaydayAPI". Þá getur þú nálgast ClientID og ClientSecret sem þarf að afrita og seinna að senda það á Godo. Mikilvægt að afrita það áður en smellt er á vista.

Þegar að þú ert búin að vista þá getur þú farið að stofna vörur fyrir Gistináttaskattinn.

Undir Sala > Vörur > Ný vara. Mikilvægt er að velja Vörunúmer (SKU) það er valkvætt en það þarf að senda það áfram til Godo.

Lykill fyrir sölu er Velta undanþegin VSK (1120)

Einnig er gott að setja inn verðið sem eru 800 kr árið 2026. Síðan getur þú vistað vöruna.

Síðan þarf að stofna vöru fyrir gistinguna. 

Smellir á Sala > Vörur > Ný vara. 

Síðan í vörunni velur þú Lýsingu, Vörunúmer (SKU), Söluverðið ásamt Lykill fyrir sölu. Sjá mynd:

Þegar þetta er komið þá getur þú vistað vöruna.

Senda upplýsingar á Godo

Síðan þarf að senda eftirfarandi í tölvupósti til Godo.

  • ClientID 
  • ClientSecret
  • Vörunúmer (SKU) fyrir gistináttaskatt
  • Vörunúmer (SKU) fyrir gistingu

Mikilvægt! Þú sendir síðan tölvupóst á support@godo.is og þeir tengja kerfin saman fyrir þig.