Þegar að verið er að bóka millifærslu á milli eigin reikninga eða innborgun á kreditkort er mikilvægt að passa sig að tvíbóka ekki.
Hér erum við með millifærslu á milli eigin bankareikninga upp á 508.799 kr.

Til þess að stofna færsluna þá smellum við á annað > plúsinn > veljum mótreikning sem í þessu tilfelli væri banki 2.

Þegar að það er komið þarf að para færsluna með því að smella á græna "check" merkið.

Síðan er mjög mikilvægt að áður en að við jöfnum hina færsluna að það sé hakað í "nei" í "bara óparað.

Ef svo er þá getur þú smellt á annað (ekki smella á plúsinn) þá ætti færslan að koma upp. Ef ekki getur hjálpað að leita eftir upphæð færslunnar.

Svo getur þú parað færsluna. Þá er þetta komið hjá þér.
