Samþætting við bokun.io felur í sér sjálfvirka tengingu sem breytir greiddum bókunum í tilbúna reikninga í Payday án handvinnu og án tvískráningar.
Nánari upplýsingar um tenginguna er hægt að skoða hérna
Helstu eiginleikar á vefþjónustutengingu á milli Payday og Bókun
1. Fyrir þá sem eru suppliers í Bókun
Þegar pöntun er greidd í Bókun stofnast reikningur eða drög í Payday
Ef þú vilt láta alla erlenda gesti skrást á sama viðskiptamann að þá er hægt að stila það af og nota t.d. Kennitölu 999999-9999 fyrir allar slíkar bókanir
2. Fyrir þá sem eru suppliers en leyfa resellers að selja sína vörur/þjónustu og þessi virkni beinist að þeim bókunum sem skapast af endursölu (resellers)
Kennitala endursöluaðila (resellers) er tengdur við ID þeirra í bókun
Reikningur myndast á endursöluaðila þegar að þjónusta hefur farið fram, ef pöntun kemur inn 1.feb en ferð er farinn 20.Júlí að þá þegar ferð en farin 20. Júlí að þá myndast reikningur eða drög á viðkomandi endursöluaðila
Reikningur myndast með þeirri söluþóknun sem samið var um í marketplace hjá Bókun (commission kemur sem afsláttur á reikningi)
Hægt er að stilla kerfið þannig að reikningur stofnist beint á endursöluaðila og að þeir sendast beint í innheimtu/netbanka (engin snerting á sér stað hérna fyrir eiganda/bókara)
Þeir sem rukka stóra endursöluaðila t.d. Einu sinni í mánuði geta stillt kerfið að endursöluaðili A og C fái bara einn reikning per mánuð
3. Fyrir þá sem eru bara resellers (endursöluaðilar)
Þegar pöntun er greidd þá stofnast reikningur eða drög beint í Payday
Nánar um tenginguna er hægt að skoða hér og fyrir þá sem vilja mögulega fá viðbótarvirkni á tenginguna geta haft samband á addons@addons.is