Samþætting milli Kozmoz og Payday býður upp á einfaldari og skilvirkari vinnuferla.
Tengingin er sett upp á örfáum sekúndum og gerir notendum kleift að skrá vörur beint úr vörulista Payday inn á verk í Kozmoz.
Við útskuldun má svo flytja gögn úr Kozmoz – svo sem tímaskráningar, útlagðan kostnað og vörur af lager – beint yfir í Payday. Þetta sparar verulegan tíma, minnkar handvirkan innslátt og dregur úr villuhættu, sem skilar sér í nákvæmari og hraðari reikningagerð.
Samþætting virkjuð
- Inni í Kozmoz er smellt á “Samþættingar” og þar á eftir “Virkja” undir Payday merkinu.
- Ef notandinn er ekki nú þegar skráður inn, þarf hér að auðkenna hjá Payday.
- Staðfesta heimildir sem Payday veitir Kozmoz.
- Samþætting orðin virk.
Payday vöru bætt á verkefni í Kozmoz
- Hér er sýnt hvernig vöru úr Payday er bætt við verkefni í Kozmoz. Þetta á t.d. við um vörur af lager sem haldið er utanum í Payday, akstur, o.s.frv.
- Á sama hátt er hægt að bæta vörum á verkefni úr Kozmoz appinu.
- Payday vara skráð á verkefni.
Gögn flutt úr Kozmoz í Payday til útskuldunar
- Öll gögn úr Kozmoz er hægt að flytja í Payday og mynda þannig grunn að stofnun reiknings. Gögnunum er skipt í 3 flokka:
- Vinnustundir
- Aðkeypt efni af rafrænum reikningum sem tengdir hafa verið við verkefnið
- Annar kostnaður, s.s. vörur úr vörulista Payday
- Drög að reikning í Payday








