Til þess að greiða laun fyrir 70+ þá þarf að stofna sér launalið sem er síðan valinn á launakeyrslunni.

A.T.H það þarf að velja lífeyrissjóð á starfsmannin þó svo að hann greiði ekki í hann.

Skref fyrir skref

1. Launaliðurinn er stofnaður undir Stillingar > Fyrirtæki > Laun >  Launaliðir > Bæta við.

2. Þegar að það er komið þá þarf að stofna launaliðinn rétt. Passa þarf að haka úr "Reikna  lífeyrissjóðsgjöld". Þegar að það er komið þá smellir þú á staðfesta.

3. Síðan er mjög mikilvægt að haka í vista neðst á síðunni. Svo að launaliðurinn haldist inni.

Launaliður valinn á launakeyrslu

Þegar að það er búið að stofna launaliðinn þá getur þú valið hann á starfsmanninn undir Laun > Ný launakeyrsla > Smellir á starfsmanninn > Laun og hlunnindi > Velur launaliðinn.