Um SalesCloud samþættinguna

Samþætting við SalesCloud felst í því að stilla upp SalesCloud App sem tengist við Payday.

Helstu eiginleikar viðbótarinnar

  • Pantanir úr SalesCloud færast beint inn í færslubók
  • Sölur í reikning í SalesCloud safnast saman inn á reikning í drögum fyrir viðkomandi viðskiptavin í Payday
  • Kerfin samstillast einu sinni á dag


Forkröfur til þess tengjast Payday með SalesCloud

  • Viðskiptavinur þarf að vera skráður í Allur pakkinn.


Setja upp samþættingu við SalesCloud

1. Farðu í Stillingar > Fyrirtæki > Samþættingar í Payday og smelltu á Bæta við


2. Veldu SalesCloud undir Tegund tengingar.

ATH! Afritaðu ClientId og ClientSecret áður en þú smellir á staðfesta, þú þarft á þeim upplýsingum að halda í næsta skrefi.

Undir Stillingar getur þú valið hvaða dagsetning þú vilt byrja að lesa inn færslur frá (dagsetningin í dag er sett sjálfkrafa).


3. Skráðu þig inn í SalesCloud og farðu í Appstore. Finndu Payday í listanum og smelltu á Install


4. Sláðu inn ClientId og ClientSecret frá skrefinu hér á undan í reitina og veldu Production sem API Endpoint. Smelltu að lokum á Install.

Núna ertu búinn að stofna tengingu á milli Payday og SalesCloud. Núna þarftu að stilla samþættinguna.


5. Farðu aftur í Stillingar > Fyrirtæki > Samþættingar í Payday og smelltu á samþættinguna sem þú varst að stofna.

Í glugganum veldu Stillingar og paraðu saman greiðslumátana í SalesCloud við viðeigandi bókhaldlykla í Payday. 

ATH! Það getur tekið nokkrar sekúndur fyrir Payday að sækja upplýsingar úr SalesCloud. Gæti þurft að loka og síðan opna gluggann aftur til þess að fá upp listann.

Að lokum þarftu að smella á Staðfesta svo að breytingarnar vistast.

Til hamingju! Núna ertu búinn að setja upp nýja samþættingu við SalesCloud.


Stofna bókhaldslykil í Payday 

Ef greiðslumátinn þinn í SalesCloud þarf á sér bókhaldslykli að halda þá þarftu að stofna nýjan bókhaldslykil inni í Payday.

Ráðlegt er að hafa einn bókhaldslykil fyrir hvern greiðslumáta. 

Tökum dæmi:
Í SalesCloud býð ég viðskiptavinum mínum að greiða með reiðufé. Farðu undir Bókhald > Bókhaldslyklar og smelltu á Nýr lykill.

Til þess að stofna bókhaldlykil inni í Payday sem mun birtast undir Stillingar > Fyrirtæki > Samþættingar þarftu að haka við Tekur á móti greiðslum.

Smelltu að lokum á Vista. 

Ef þig vantar frekari aðstoð hafðu þá samband við okkur á hjalp@payday.is