Payday sér um að búa til og senda sjálfvirkt inn skilagreinar fyrir lífeyrissjóðssgreiðslur. Hægt er að velja hvenær skilagreinar eru sendar undir Stillingar við gerð launakeyrslu.

Hafi notandi valið að hann vilji greiða í viðbótarlífeyrissjóð undir stillingarsíðu býr kerfið einnig til skilagrein fyrir það.

Hægt er að skoða þessar skilagreinar undir yfirlitssíðum.

Ekki tókst að senda inn skilagreinar til lífeyrissjóðs:

Ef notandi hefur fengið tölvupóst um að ekki hafi tekist að senda inn skilagreinar til lífeyrissjóðs, þá er vandamálið líklegast það að notendanafn og /eða veflykill að launagreiðandavef viðkomandi lífeyrissjóðs er vitlaust skráð í Payday. Þessu er hægt að breyta undir Stillingar > Starfsmenn > Lífeyrissjóðir og stéttarfélög.