Þú greiðir þér laun með því að smella á Laun og "Ný launakeyrsla".

Þar birtist útborgunarsíða með öllum virkum starfsmönnum þar sem allar tölur tengdar útborguninni koma fram sbr. greiðslur í lífeyrissjóð, staðgreiðslu o.s.frv. Þar er líka hægt að bæta við launa- og frádráttarliðum. Passa þarf að velja rétt tímabil.


Greiðslubunkar

Payday millifærir ekki launin sjálfkrafa en hægt er að láta stofna greiðslubunka fyrir millifærslu launa sem þarf að staðfesta í netbankanum og þá eru launin millifærð. Þetta er stillt undir Stillingar > Fyrirtæki > Banki og hakað við að greiðslubunki sé stofnaður við millifærslu launa. Ef þessi stilling er ekki valinn þá þarf að millifæra útborguð laun handvirkt. Hægt er að velja úttektarreikninginn undir Stillingar > Fyrirtæki > Banki.

Hvar finn ég greiðslubunka í netbankanum?

  • Hjá Íslandsbanka finnur þú þá undir Greiðslur > Greiðsluskrár > Yfirlit
  • Hjá Landsbankanum finnur þú þá undir Innlendar greiðslur > Greiðslubunkar > Geymdir
  • Hjá Arion banka finnur þú þá undir Greiðslubunkar > Bunkar í vinnslu


Skilagreinar

Skilagreinar er hægt að senda með einföldum hætti og er það stillt undir Stillingar flipanum í launakeyrslunni. Hægt er að velja um að skilagreinar séu sendar á eindaga, sendar strax, á ákveðinni dagsetningu eða að skilagreinar séu ekki sendar.

Launaseðlar

Þú getur nálgast launaseðla í Payday hvenær sem er og eru þeir í samræmi við hefðbundna launaseðla þar sem fram kemur m.a. laun, mótframlag launagreiðanda, staðgreiðsla, greiðsla í lífeyrissjóði og upplýsingar um nýttan persónuafslátt. Það er alfarið á þinni ábyrgð að upplýsingar um launareikning, stéttarfélag og lífeyrissjóð séu réttar.

Hægt er að bæta við sjálfgefni athugasemd á alla launaseðla undir Stillingar > Fyrirtæki > Laun > Launaseðlar. 

Síðan er hægt að skrá sjálfgefin athugasemd á ákveðin starfsmann undir Stillingar > Starfsmenn > Velur starfsmann > Laun > Launaseðlar. Ef sjálfgefin athugasemd er skráð á ákveðin aðila þá fær sá aðilli ekki þá athugasemd sem búið var að skrá á alla einstaklinga. 


Saga

Hægt er að sjá undir saga í launakeyrslu hver stofnaði launakeyrsluna og hvort greiðslubunki hafi verið stofnaður


Hér að neða er kennslumyndband um hvernig skal gera launakeyrslu.