Skil á virðisaukaskatti (vsk skýrslum)

Skrifað af
uppfært yfir 2 árum síðan
Tímabil á vsk skilum ákvarðast út frá því hvað notandi valdi þegar hann sótti um vsk lykil í byrjun og tengist þess vegna veflykli virðisaukaskatts.
Undir yfirlitssíðum er að finna skil á virðisaukaskatt. Síðan birtir lista yfir þær vsk skýrslur sem hefur verið skilað með möguleika á að skoða núverandi tímabil.
Ef smellt er á "Skoða núverandi tímabil" er birt síða þar sem sundurliðun á næstu vsk skýrslu er sýnd. Það sem kemur fram á þessu yfirliti er listi yfir þá reikninga og upphæðir sem koma inn á núverandi vsk tímabil. Einnig er birtur listi yfir innskatt sem eru þeir reikningar og kostnaðarliðir sem eiga að koma til móts til lækkunar á vsk greiðslu.
Frekari upplýsingar um vsk skil er að finna inná vef ríkisskattsjóra:
https://www.rsk.is/atvinnurekstur/rafraen-skil/virdisaukaskattur/