Um Booking Factory samþættinguna

Samþætting við Booking Factory felst í því að setja upp API tengingu milli Booking Factory og Payday.

Helstu eiginleikar viðbótarinnar:

  • Viðskiptavinir eru stofnaðir
  • Pantanir úr Booking Factory færast beint inn í Payday sem reikningar
  • Þegar pantanir eru merktar "Í reikning" í Booking Factory þá eru reikningar stofnaðir í "Drög" í Payday sem hægt er svo að vinna áfram með 
  • Kerfin samstillast einu sinni á dag


Forkröfur til þess tengjast Payday með Booking Factory

  • Viðskiptavinur þarf að vera skráður í Allur pakkinn áskriftarleiðina í Payday
  • Viðskiptavinur þarf að vera með skráðan aðgang hjá Booking Factory


Setja upp samþættingu við Booking Factory

1. Farðu í Stillingar > Fyrirtæki > Samþættingar í Payday og smelltu á Bæta við


2. Veldu Booking Factory undir Tegund tengingar.

Undir Stillingar setur þú inn Public Key, Secret Key, HotelID, frá hvaða dagsetningu þú vilt byrja að lesa inn færslur (dagsetningin í dag er sett sjálfkrafa) og hvort þú vilt að reikningar séu sendir í tölvupósti á viðskiptavini. Því næst smellir þú á "Tengjast".

Til að nálgast Public Key, Secret Key og HotelID þarf að fara undir Settings > Connectivity Settings > Developers Keys í Booking Factory og skrá nýjan lykil, haka við öll "checkbox", smella á "Save" og svo "Show" til að sýna lyklana. HotelID kemur svo fram efst á þessari síðu, aftast í slóðinni "Endpoint".



3. Tengja saman greiðslumáta og bókhaldslykla í Payday.

Í glugganum birtast þeir greiðslumátar sem eru í boði í Booking Factory og þú þarft að para saman greiðslumátana við viðeigandi bókhaldlykla í Payday. 

Að lokum þarftu að smella á Staðfesta svo að breytingarnar vistast.

Til hamingju! Núna ertu búinn að setja upp nýja samþættingu við Booking Factory.


Stofna bókhaldslykil í Payday 

Ef greiðslumátinn þinn í Booking Factory þarf á sér bókhaldslykli að halda þá þarftu að stofna nýjan bókhaldslykil inni í Payday.

Ráðlegt er að hafa einn bókhaldslykil fyrir hvern greiðslumáta. 

Tökum dæmi:
Í Booking Factory býð ég viðskiptavinum mínum að greiða með greiðslukorti (Reya). Farðu undir Bókhald > Bókhaldslyklar og smelltu á Nýr lykill.

Til þess að stofna bókhaldlykil inni í Payday sem mun birtast undir Stillingar > Fyrirtæki > Samþættingar þarftu að haka við Tekur á móti greiðslum.

Smelltu að lokum á Vista. 

Ef þig vantar frekari aðstoð hafðu þá samband við okkur á hjalp@payday.is