Búa til nýja vöru

  • Til þess að búa til nýja vöru í vörukerfinu þá þarf notandi að vera skráð/ur í Allur pakkinn
  • Smellt er á Sala > Vörur og Ný vara
  • Þar er sett inn nafn vöru, lýsingu og tag sem getur verið vöruflokkur, stærð, litur o.s.frv.
  • Næst er valið einkvæmt vörunúmer (SKU)
  • Sett er inn magn á lager sem uppfærist þegar reikningur er stofnaður (það er skilið eftir tómt ef það á ekki við)
  • Söluverð er slegið inn í annan hvorn dálkinn, Söluverð án eða með VSK
  • Bókhaldslykill er valinn fyrir sölu sem bókast beint í bókhaldið þegar reikningur er stofnaður, t.d. Sala með 24% VSK