Fara beint í efni
Á þessari síðu

Viðskiptavinir

Hér sérðu hvernig þú finnur, stofnar og eyðir viðskiptavinum í Payday. Viðskiptavinir eru þeir aðilar sem þú gefur út sölureikninga á.

Yfirlit viðskiptavina#

  1. Farðu í Sala > Viðskiptavinir.
  2. Þá birtist listi yfir alla viðskiptavini sem stofnaðir hafa verið í kerfinu ásamt grunnupplýsingum um þá.
  3. Smelltu á viðskiptavin til að sjá yfirlit reikninga, þ.e. alla reikninga sem gefnir hafa verið út á viðkomandi viðskiptavin.


Stofna nýjan viðskiptavin#

  1. Farðu í Sala > Viðskiptavinir.
  2. Smelltu á Nýr viðskiptavinur uppi í hægra horninu.
  3. Veldu hvort um er að ræða Einstakling, Fyrirtæki eða Annað.
  4. Sláðu inn nafn eða kennitölu. Kerfið sækir þá frekari upplýsingar sjálfkrafa í Þjóðskrá eða Fyrirtækjaskrá nema ef valið var Annað.
  5. Þegar allar upplýsingar eru komnar inn þá getur þú smellt á Vista

Erlendir viðskiptavinir#

Ef viðskiptavinurinn er erlendur aðili sem er ekki með íslenska kennitölu velur þú Annað í stað einstaklings eða fyrirtækis. Þú þarft aðeins að skrá inn nafn og netfang í því tilfelli.

Flytja inn viðskiptavini#

Þú getur flutt inn Excel-skjal með viðskiptavinum undir Sala > Viðskiptavinir > Aðgerðir > Hlaða upp skrá. Excel-skráin sem þarf að hlaða upp er hægt að nálgast hér: Innlestur á viðskiptavinum úr Excel 

Eyða viðskiptavini#

  1. Farðu í Sala > Viðskiptavinir.
  2. Smelltu á ruslatunnuna til hægri í línu viðskiptavinarins sem þú vilt eyða.

Athugaðu að ekki er hægt að eyða viðskiptavini sem búið er að gefa út reikning á. Það þarf að setja hann í geymslu.


Hvernig læt ég viðskiptavin í geymslu?#

  1. Farðu í Sala > Viðskiptavinir.
  2. Smelltu á viðskiptavininn sem þú vilt setja í geymslu.
  3. Hakaðu í "í geymslu"
  4. Vistaðu

Algengar spurningar#

Af hverju er ekki hægt að eyða viðskiptavini?#

Ekki er hægt að eyða viðskiptavini sem búið er að gefa út reikning á, því reikningarnir þurfa að haldast tengdir honum. 

Hvernig er viðskiptavinur án íslenskrar kennitölu skráður?#

Veldu Annað þegar þú stofnar nýjan viðskiptavin. 

Er hægt að flytja marga viðskiptavini inn í einu?#

Já, það er hægt að flytja inn marga viðskiptavini í einu í gegnum Excel sjá hér: Innlestur á viðskiptavinum úr Excel