Stöðulisti á viðskiptavinum og lánadrottnum
Þú getur skoðað stöðuna á viðskiptavinum og lánadrottnum. Það getur verið gott að nýta sér það til að sjá hvort að það sé útistandandi skuld á þeim.
Þegar valið er Bókhald > Lánardrottnar er í hægra horninu hnappurinn Stöðulisti. Hann sýnir stöðu á öllum lánardrottnum á þeirri dagsetningu sem valin er.

Einnig er hægt að sækja stöðulista fyrir viðskiptavini undir Sala > Viðskiptavinir > Stöðulisti (hægra megin í horninu)
