Fara beint í efni

Handfærður innskattur

Handfærður innskattur lykill 4340 fyrir 24% eða 2450 fyrir 11% á aðeins við ef það þarf að reikna 100% vsk af línu í útgjöldum eða í dagbókinni. Þá mun sú upphæð á línuni fara öll inn á vsk skýrsluna.


Dæmi#

Hér er ég með dæmi af útgjöldum sem eru með línu upp á 2.000 kr (Sem er vsk upphæðin á reikningnum) sem eiga að færast á handfærðan innskatt svo að við getum innskattað upphæðina af fullu.

Skrá inn útgjöldin: Ég skrái útgöldin inn og vel síðan lykilinn Handfærður innskattur 24% undir flokkur.

Bóka: Þegar að það er komið bóka ég útgjöldin. Með því að smella á skrá útgjöld.

Skoða VSK skýrsluna: Þú getur síðan skoðað hvernig þetta kermu út á vsk  skýrslunni undir Yfirlit > Virðisaukaskattur > Velur tímabilið sem útgjöldin svoru bókuð á > Smellir síðan á örin við innskattur.


Einnig er hægt að skrá VSK í tolli í gegnum dagbók. Sjá nánar í hjálpargreininni VSK og innflutningsgjöld vegna innflutnings/VSK í tolli