Fara beint í efni

Aðgangsstýringar notenda

Hlutverk notenda

Hægt er að stýra hlutverkum á notanda en þó aðeins í Allur pakkinn áskritinni. Þegar Nýr notandi er stofnaður er hægt að velja hlutverk fyrir þann notanda, Stórnandi, Sala, Launafulltrúi, Bókari og Uppgjör

Stjórnandi: Hefur fullan aðgang að öllum aðgerðum.

Sala: Hefur takmarkaðan aðgang að aðgerðum tengdum reikningum, áskriftum, tilboðum, vörum og viðskiptavinum.

Launafulltrúi: Hefur takmarkaðan aðgang að launatengdum aðgerðum sbr. starfsmönnum, launavinnslum og skýrslum.

Bókari: Hefur fullan aðgang en getur ekki stofnað nýja notendur eða breytt áskriftum.

Uppgjör: Hefur fullan aðgang en getur eki unnið með laun, stofnað nýja notendur eða breytt áskrift.

Stjórnandi getur breytt hlutverki annara notanda en notandi getur ekki breytt sínu hlutverki.